Mauricio Pochettino landsliðsþjálfari Bandaríkjanna er spenntur fyrir að snúa aftur í ensku úrvalsdeildina í framtíðinni.
Hann gerði frábæra hluti við stjórnvölinn hjá Tottenham frá 2014 til 2019 en var rekinn eftir slaka byrjun á tímabilinu 2019-20, aðeins hálfu ári eftir að hafa komið Spurs í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.
Pochettino var gestur í hlaðvarpsþættinum Stick to Football og var meðal annars spurður út í mögulega endurkomu í enska boltann, en hann stýrði Paris Saint-Germain og Chelsea eftir að hafa verið rekinn úr starfinu hjá Tottenham.
„Ég vil snúa aftur í úrvalsdeildina einn daginn, mér líkar mjög vel við England," sagði Pochettino. „Ég held að prófíllinn minn, bæði sem manneskja og þjálfari, passi mjög vel við úrvalsdeildina."
Pochettino er samningsbundinn Bandaríkjunum út heimsmeistaramótið. Hann fær heiðurinn á að stýra Bandaríkjamönnum á heimavelli en það eru 32 ár liðin síðan HM var síðast haldið í landinu.
Pochettino var orðaður við endurkomu til Tottenham í vetur áður en Roberto De Zerbi var ráðinn á fimm ára samningi og hefur Manchester United einnig verið nefnt til sögunnar þar sem stórveldið er í þjálfaraleit eftir brottrekstur Ruben Amorim. Michael Carrick er þó talinn líklegur til að fá starfið þar.
30.04.2026 11:30
Pochettino segir sárt að sjá Tottenham þjást




