Brasilíski sóknarmaðurinn Fred, sem skoraði 18 mörk í 39 landsleikjum og spilaði fyrir Lyon í fjögur ár, er búinn að skrifa undir samning við Fluminense í heimalandinu í annað sinn á ferlinum.
Fred er 36 ára gamall og lagði skóna á hilluna eftir HM 2014, þegar hann var á mála hjá Fluminense. Hann dró skóna aftur fram nokkrum mánuðum síðar og var búist við því að hann myndi leggja þá endanlega á hilluna eftir síðustu leiktíð með Cruzeiro.
Fred verður kynntur sem nýr leikmaður Fluminense í vikunni, eftir að hann lýkur 600 kílómetra hjólatúr frá Belo Horizonte, þar sem Cruzeiro er staðsett, til Rio de Janeiro.
Fyrir hvern kílómeter sem Fred hjólar mun hann gefa matarkörfu til fólks í neyð. Hann hefur hrint af stað fjáröflun með þessu uppátæki sínu í baráttunni gegn þeim hræðilegu áhrifum sem Covid-19 er að hafa á Brasilíu.
ELE VOLTOU! #VaiTePegar pic.twitter.com/oGOg0hpvU1
— Fluminense F.C. (de 🏡) (@FluminenseFC) May 31, 2020
Athugasemdir