Þýska knattspyrnusambandið rannsakar skilaboð Sancho og annarra leikmanna
Framkvæmdastjóri Fare Network, samtökum sem berjast gegn mismunun í fótbolta, gagnrýnir dómarann í leik Paderborn og Dortmund í þýsku úrvalsdeildinni í gær.
Jadon Sancho skoraði þrennu fyrir Dortmund í leiknum. Eftir að hafa komið boltanum í netið minntist Sancho, George Floyd, sem var myrtur af lögreglumanni í Bandaríkjunum á dögunum. Málið hefur vakið óhug um allan heim og mikið hefur verið mótmælt í Bandaríkjunum í kjölfar þess.
Sancho fékk gult spjald fyrir að fara úr treyju sinni, en það gerði hann til að sýna skilaboðin. „Að spjalda Jadon Sancho, eða aðra fótboltamenn, fyrir yfirlýsingar til stuðnings við mann sem var myrtur á óréttlátan hátt er röng ákvörðun," segir Piara Powar.
„Þetta er ekki mál sem snýr að flokkspólitík, eða mál sem ógnar fótbolta, heldur eru leikmenn í minnihlutahóp að tjá áhyggjur sínar og sýna samstöðu."
Aðrir leikmenn minntust Floyd í þýsku úrvalsdeildinni um helgina. Weston McKennie, fyrirliði Schalke, Marcus Thuram, markahrókur Borussia Mönchengladbach, og Achraf Hakimi, liðsfélagi Sancho hjá Dortmund, gerðu það einnig. Þýska knattspyrnusambandið segist vera að rannsaka það hvort að leikmennirnir hafi brotið reglur sambandsins.
Sjá einnig:
Fyrsta þrenna Sancho súrsæt: Við erum sterkari saman
DFB will investigate Sancho's goal celebration at the weekend along with Hakimi's, McKennie's and Thuram's. #BLM #GeorgeFloydhttps://t.co/EaC2fUKPgb https://t.co/ZI16pmUWK8
— Nizaar Kinsella (@NizaarKinsella) June 1, 2020
Athugasemdir