Fotbolti.net
08.09.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Fanney Lísa að verða atvinnumaður - „Félagið er ofboðslega stolt af henni"

Fanney Lísa að verða atvinnumaður - „Félagið er ofboðslega stolt af henni"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Fanney Lísa Jóhannesdóttir (2009) var ekki með Stjörnunni í 2-1 tapi gegn Víkingi í gær. Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, greindi frá því í viðtali við Fótbolta.net að hún væri á leið út í atvinnumennsku.

Hún kom við sögu í 21 leik í Bestu deildinni í fyrra og skoraði eitt mark. Hún skoraði fimm mörk í 15 leikjum í sumar.
Óskar Smári: Það er bara fokking kjaftæði
TENGT EFNI

Óskar Smári: Það er bara fokking kjaftæði

„Hún er ekki með í dag því að hún er að fara að vera atvinnumaður, já það er rétt hjá þér. Það er bara geggjað, bara ofboðslega stoltur og Stjarnan bara stolt af henni. Fanney Lísa er ofboðslega hæfileikaríkur leikmaður, skemmtikraftur, söknum hennar mikið í dag," sagði Óskar.

„Stjarnan sem félag er ofboðslega stolt af henni. Þetta er afrakstur þess að vera með gott yngri flokkastarf. Þjálfararnir í yngri flokka starfinu eiga hrós skilið ásamt foreldrum hennar hvernig hún hefur komið inn. Við erum stoltir af því að hún er að fara taka stærra skref. Við munum fylgjast spennt með henni og vonandi sjáum við hana ekki aftur fyrr en hún er orðin gömul kelling og kemur aftur heim úr atvinnumennsku."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.