08.09.26 - 07:04
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Einar Guðna vandar KSÍ ekki kveðjurnar - „Fáránlegt að við séum að spila hérna"

Einar Guðna segir KSÍ sýna Bestu deildinni vanvirðingu með því að heimila leiki í Miðgarði.

Mynd: Samsett/Hafliði Breiðfjörð

frá Miðgarði í Garðabæ.

Mynd: Aðsend

Víkingur vann Stjörnuna í Bestu deild kvenna í gær og lyfti sér af botninum. Leikurinn fór fram í Miðgarði í Garðabæ.
Karla- og kvennalið Stjörnunnar hafa spilað tvo leiki hvort í Miðgarði vegna framkvæmda á Samsungvellinum. Miðgarður uppfyllir ekki kröfur en KSÍ hefur gefið Stjörnunni undanþágu til að spila í íþróttahúsinu í Garðabæ á meðan verið er að leggja gervigras.

TENGT EFNI
„Eins og að horfa á æfingaleik í gegnum Spiideo myndavél“
Einar Guðnason, þjálfari Víkings, var vægast sagt ekki hrifinn af því að spila í Miðgarði.
„Það var ekkert verra fyrir annað hvort liðið, en það er fáránlegt að við séum að spila hérna. Boltinn fer upp í loftið hérna, áhorfendur sjá ekki völlinn, myndatakan er örugglega hörmuleg, ekki það að hann er frábær myndatökumaður," sagði Einar í samtali við Sýn.
„Það er bara lágur standard á þessari deild að leikir séu að fara fram hérna sem skipta máli í Íslandsmóti. Þetta væri eins og við værum að spila í Berserkjahrauni [heimavöllur BF108 í 4. deild]. KR-ingarnir fóru á Þróttara-völlinn, þeir spiluðu ekki á gervigrasvellinum sínum. Lið með standard fara á alvöru velli, ekki eitthvað svona kjaftæði. KSÍ á ekki að leyfa þetta. Þetta er bara vanvirðing við deildina.“

Heimild: Vísir

frá Miðgarði í Garðabæ.

Mynd: Aðsend