Fotbolti.net
08.09.26 - 08:00
Sævar Þór Sveinsson

Nýju fjárhagsreglurnar í ensku úrvalsdeildinni komnar nær reglum UEFA

Nú þurfa stjórnendur og eigendur liðanna, þar á meðal Íslandsvinurinn Jim Ratcliffe, að vinna innan nýs fjárhagsregluverks í ensku úrvalsdeildinni.

Nú þurfa stjórnendur og eigendur liðanna, þar á meðal Íslandsvinurinn Jim Ratcliffe, að vinna innan nýs fjárhagsregluverks í ensku úrvalsdeildinni.

Canon

Mynd: EPA

Utan Vallar

Nýjar fjárhagsreglur tóku við gildi í ensku úrvalsdeildinni fyrir þetta tímabil. Hér áður var í stuttu máli miðað við afkomu liðanna en nýju leikmannahópskostnaðarhlutfallsreglurnar (e. squad cost ratio) taka mið af kostnaði leikmannahópsins í hlutfalli við fótboltatengdar tekjur (e. football-related revenue) liðsins.

Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 6. september á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistilinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

Nýju SCR reglurnar byggja á þeim kostnaði sem tengist rekstri liðsins. Sá kostnaður eru laun aðalþjálfarans og leikmanna, greiðslur til umboðsmanna og afskriftir af kaupverðum leikmanna. Kostnaður við kvennalið og akademíur er ekki tekinn með inn í þessa útreikninga. Þessum kostnaði er svo deilt með fótboltatengdum tekjum (e. football-related revenue) auk meðaltals af söluhagnaði liðsins af leikmannasölum síðustu þrjú árin.

Þessar nýju fjárhagsreglur sem hafa nú verið innleiddar í ensku úrvalsdeildinni eru ekki nýjar af nálinni. UEFA innleiddi SCR reglurnar í félagsliðakeppnum sínum fyrir tímabilið 2023/24. Fyrsta tímabilið var mátti SCR hlutfallið hjá UEFA ekki fara yfir 90%, næsta tímabil á eftir því var þröskuldinum trappað niður í 80% og frá og með tímabilinu 2025/26 er þröskuldurinn 70%. Það sem skilur SCR reglurnar að hjá UEFA og ensku úrvalsdeildinni er í fyrsta lagi það að UEFA er einungis með einn þröskuld samanborið við tvo hjá ensku úrvalsdeildinni og í öðru lagi er 70% þröskuldurinn nokkuð lægri en hjá ensku úrvalsdeildinni. Þar að auki er óhagræði fólgið í því fyrir þau félög sem spila bæði í ensku úrvalsdeildinni og félagsliðakeppnum UEFA að þurfa lifa við tvö mismunandi regluverk.

Það hlutfall sem fæst út úr þessari formúla þarf svo að rúmast innan þeirra þröskulda sem SCR reglurnar kveða á um. Enska úrvalsdeildin hefur sett tvo þröskulda í SCR reglurnar, annars vegar græna þröskuldinn (e. green threshold) og hins vegar rauða þröskuldinn (e. red threshold). Græni þröskuldurinn miðast við 85% SCR hlutfall en rauði þröskuldurinn miðast við 115% SCR hlutfall, þröskuldunum fylgja svo mismunandi refsingar. Ef SCR hlutfall liðs er innan græna þröskuldsins, þ.e. á milli 85-115%, er refsingin sú að rauði þröskuldurinn lækkar á næsta tímabili sem um nemur þeim prósentustigum sem SCR hlutfallið er yfir græna þröskuldinum. 

UTAN VALLAR: Hvernig virka nýju fjárhagsreglurnar í ensku úrvalsdeildinni?
TENGT EFNI

UTAN VALLAR: Hvernig virka nýju fjárhagsreglurnar í ensku úrvalsdeildinni?

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.