Það var stór stund fyrir Frakkann Mamadou Doucoure þegar hann kom inn á í 4-1 sigri Borussia Mönchengladbach gegn Union Berlín í þýsku úrvalsdeildinni.
Doucoure kom inn á í uppbótartímanum og spilaði síðustu sekúndure leiksins.
Þessi strákur er 22 ára, en hann kom til Gladbach frá Paris Saint-Germain þegar hann var 18 ára. Í gær spilaði hann loksins sinn fyrsta leik í þýsku úrvalsdeildinni, en hann hefur ekki getað það hingað til því meiðsli hafa leikið hann grátt.
Eftir fjögur ár af meiðslum náði hann loksins að spila í gær. Frábær stund fyrir þennan franska leikmann.
IT'S HAPPENING!!! 🚨 (90')
— Gladbach (@borussia_en) May 31, 2020
📤 Florian #Neuhaus
📥 MAMADOU DOUCOURÉ
Four years of suffering, all worth the wait. Congrats, @Mams_Dcr 💚#GladToBeBach #BMGFCU 4-1 pic.twitter.com/Z8IDzKQGCs
Athugasemdir