Fotbolti.net
01.07.26 - 22:30
Ívan Guðjón Baldursson

Newcastle nær samkomulagi um Touré

Newcastle nær samkomulagi um Touré
Canon

Mynd: EPA

Sky Sports er meðal fjölmiðla sem greinir frá því að Newcastle United sé búið að ná samkomulagi við Hoffenheim um kaupverð fyrir kantmanninn Bazoumana Touré.
Tottenham nær samkomulagi við Newcastle
TENGT EFNI

Tottenham nær samkomulagi við Newcastle

Touré er tvítugur og með þrjú ár eftir af samningi við Hoffenheim, þar sem hann kom með beinum hætti að 17 mörkum í 30 deildarleikjum í Þýskalandi á síðustu leiktíð.

Talið er að Newcastle greiði um 50 milljónir evra fyrir Touré og mun nota peninga sem koma inn fyrir sölurnar á Anthony Gordon og Sandro Tonali til að fjármagna kaupin. Newcastle fær um 200 milljónir evra fyrir sölurnar á þeim tveimur og getur því bætt fleiri leikmönnum við hópinn hjá sér.

Touré fór á heimsmeistaramótið með Fílabeinsströndinni en þjóðin datt úr leik í 32-liða úrslitum gegn Noregi.

Fabrizio Romano hefur sett „here we go!" stimpilinn á félagaskiptin.
Newcastle nær samkomulagi um Touré
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.