Fotbolti.net
01.07.26 - 21:28
Ívan Guðjón Baldursson

2. deild: Auðvelt fyrir Hauka

2. deild: Auðvelt fyrir Hauka
Canon

Mynd: Sigurður Elefsen

Haukar 4 - 1 Kári
1-0 Sigurður Hrannar Þorsteinsson ('20, víti)
2-0 Sigurður Hrannar Þorsteinsson ('25)
2-1 Jón Þór Finnbogason ('57)
3-1 Gabríel Aron Sævarsson ('67)
4-1 Daði Snær Ingason ('90)
Lestu um leikinn: Haukar 4 - 1 Kári
Haukar tóku á móti Kára í toppbaráttu 2. deildarinnar fyrr í kvöld og skópu heimamenn nokkuð þægilegan sigur.

Sigurður Hrannar Þorsteinsson skoraði tvö fyrstu mörk leiksins á fimm mínútna kafla. Fyrra markið gerði hann úr vítaspyrnu eftir að Magnús Ingi Halldórsson var felldur innan vítateigs og var seinna markið laglegt þar sem það kom nánast upp úr þurru.

Sigurður Hrannar jafnaði andstæðing sinn í kvöld, Matthías Daða Gunnarsson, í keppninni um markatitil 2. deildarinnar með þessari tvennu. Þeir eiga báðir 9 mörk eftir 11 umferðir.

Jón Þór Finnbogason minnkaði muninn fyrir gestina í síðari hálfleik en Gabríel Aron Sævarsson og Daði Snær Ingason innsigluðu sigur heimamanna svo lokatölur urðu 4-1. Haukar voru sterkari aðilinn og verðskulduðu sigurinn.

Haukar tróna á toppi 2. deildar með 23 stig eftir 11 umferðir. Kári situr eftir í 3. sæti með 17 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.