Fotbolti.net
01.07.26 - 19:13
Ívan Guðjón Baldursson

Tottenham nær samkomulagi við Newcastle

Tottenham nær samkomulagi við Newcastle
Canon

Mynd: EPA

Sky Sports greinir frá því að Tottenham sé búið að ná samkomulagi við Newcastle United um kaup á ítalska miðjumanninum Sandro Tonali.
Tottenham, sem lenti í óvæntri fallbaráttu á síðustu leiktíð, borgar í heildina 100 milljónir punda til að kaupa Tonali.

Þetta verður því annar dagurinn í röð sem Tottenham semur um að bæta eigið félagsmet í leikmannakaupum, eftir að hafa náð samkomulagi við West Ham United um kaup á Mateus Fernandes fyrir 85 milljónir punda í gær.

Tonali hefur verið orðaður við ýmis stórlið í enska boltanum en hann virðist vera á leið til Tottenham. Þar bætist hann við öflugan hóp miðjumanna sem inniheldur einnig Pape Sarr, Conor Gallagher, Archie Gray, Lucas Bergvall og Rodrigo Bentancur - auk Mateus Fernandes.

Búist er við að Tonali verði meðal allra launahæstu leikmanna Tottenham í ljósi þess að Manchester City reyndi einnig að krækja í hann, en Tonali er spenntur fyrir að starfa undir stjórn samlanda sins Roberto De Zerbi.

Viðræður Newcastle og Spurs halda áfram - Buðu 90 milljónir punda
TENGT EFNI

Viðræður Newcastle og Spurs halda áfram - Buðu 90 milljónir punda

Tottenham nær samkomulagi við Newcastle
Canon

Mynd: West Ham

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.