Tuchel: Alveg sama hvað fólk segir

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Thomas Tuchel landsliðsþjálfari Englands var hress eftir endurkomusigur gegn Austur-Kongó í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í dag.

TENGT EFNI
Þrír í enska landsliðinu fá algjöra falleinkunn
Hann hrósaði Harry Kane í hástert að leikslokum líkt og aðrir leikmenn Englands gerðu í sínum viðtölum. Kane skoraði bæði mörk Englands í 2-1 sigri eftir að hafa verið marki undir í hálfleik.
„Þetta er nákvæmlega það sem við búumst við frá honum. Hann er hérna til að gera herslumuninn í jöfnum og erfiðum leikjum. Ég er mjög ánægður með hann og varamennirnir skiluðu líka sínu. Orkan í hópnum er frábær og liðsheildin líka. Allir strákarnir eru á sömu blaðsíðu," sagði Tuchel.
„Andrúmsloftið er mjög gott og öllum líður vel þó að þeir spili ekki jafn mikið og næsti maður. Strákarnir átta sig á mikilvægi þess að hafa jákvætt andrúmsloft og við höfum engar efasemdir um gæðin sem við búum yfir. Við vorum ekki tilbúnir að samþykkja tap í dag, strákarnir hættu aldrei að efast um eigin getu og það skilaði sér að lokum. Þeir sýndu sterkan karakter og lögðu sig alla í verkefnið.
„Þetta var erfiður leikur útaf því að við byrjuðum illa. Þeir náðu forystunni og við áttum í vandræðum með að pressa þá þar til eftir fyrstu vatnspásuna. Eftir þessa vatnspásu vorum við með stjórn á leiknum og verðskulduðum að koma til baka og ná í sigur. Besta táknið er að við sköpuðum urmul færa og áttum kannski að fá vítaspyrnu.
„Þetta var mjög líkamlegur leikur og strákarnir þurftu að kafa djúpt til að finna kraftinn sem þurfti til að sigra. Ég er ánægður."
Fjölmiðlar segja að enska landsliðið hafi ekki verið jafn sannfærandi og þjóðir á borð við Frakkland og Argentínu á upphafi móts.
„Mér er alveg sama um hvað fólk segir. Þessar tvær þjóðir eru sigurstranglegastar og það hentar okkur, við erum ánægðir með okkar stöðu."

HM: Harry Kane kom Englandi til bjargar

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA