„Einn af efnilegustu sóknarleikmönnum Skandinavíu"

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eins og greint var frá fyrr í dag hefur táningurinn Arnar Bjarki Gunnleifsson samið við danska stórveldið Bröndby.

TENGT EFNI
Arnar Bjarki seldur til Bröndby (Staðfest)
Arnar Bjarki er aðeins 15 ára gamall og hefur verið að gera frábæra hluti með unglingalandsliðum Íslands auk þess að vera búinn að taka sín fyrstu skref með meistaraflokki Breiðabliks.
Núna hefst nýr kafli á ferlinum hjá Arnari og er Jens Mikkel Frölunde, yfirmaður þróunarmála hjá Bröndby, spenntur fyrir táningnum.
„Arnar Bjarki Gunnleifsson er einn af efnilegustu sóknarleikmönnum sinnar kynslóðar í Skandinavíu og það er ekki skrýtið að mörg félög hafi verið að fylgjast með honum. Við erum mjög ánægðir með að hann hafi valið okkur framyfir aðra klúbba," segir Frölunde.
„Arnar hefur mikla þekkingu á leiknum eftir að hafa spilað margar mismunandi stöður á vellinum. Hann er afar fjölhæfur leikmaður og er búinn að vera sérstaklega öflugur síðasta árið sem framherji. Hann hefur þróast mikið sem leikmaður og getur orðið virkilega mikilvægur leikmaður í framtíðinni. Okkur hlakkar mikið til að starfa með honum hjá Bröndby."
Arnar Bjarki skiptir yfir til Bröndby í janúar næstkomandi, þegar hann verður búinn að eiga 16 ára afmæli. Hann á afmæli í nóvember og klárar því sumarið með Breiðabliki.