Fotbolti.net
01.08.18 - 22:11
Ármann Örn Guðbjörnsson

Gonzalo Zamorano: Mikilvæg þrjú stig

Auglýsing
Gonzalo Zamorano: Mikilvæg þrjú stig
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gonzalo Zamorano Leon, framherji Víkings Ólafsvíkur átti frábæran leik þegar liðið sigraði Magna í kvöld í 14 umferð Pepsi-deildar karla. Gonzalo skoraði tvö og lagði upp eitt.
Gonzalo eða Gonzi eins og hann er oftast kallaður átti stórbrotinn leik fyrir sitt lið, Víking Ólafsvík í kvöld er liðið sigraði Magna 4-1. Gonzi skoraði tvö og lagði upp eitt en hann var grátlega nálægt því að klára þrennuna.



\"Þetta var mjög góður leikur og við vissum að þurftum að vinna þennan leik. Þetta voru mjög mikilvæg þrjú stig, sérstaklega á heimavelli þar sem við þurfum að vinna flesta leiki.\"



Víkingar eru í mjög harðri toppbaráttu en liðið situr í 3 sæti, stigi frá toppsæti deildarinnr. Gonzalo er bjartsýnn á framhaldið í Ólafsvík



\"Við erum í mjög góðri stöðu, vonandi komumst við upp í Pepsi en það verður erfitt þar sem við erum í harðri baráttu við þrjú önnur lið.\"



Að lokum má sjá brot af íslensku kunnáttu Gonzalo en hann er á sínu öðru ári í íslenska boltanum eftir ár með Huganum í fyrra.



Viðtalið má sjá í heild sinni hér í tækinu fyrir ofan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.