Fotbolti.net
01.08.18 - 14:38
Arnar Daði Arnarsson

Hlíf Hauks lánuð í ÍBV (Staðfest)

Hlíf Hauks lánuð í ÍBV (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Hertz
Miðjumaðurinn, Hlíf Hauksdóttir hefur verið lánuð í ÍBV frá Val.

ÍBV er í 5. sæti Pepsi-deildar kvenna með fjórtán stig að loknum tólf umferðum.
Hlíf hefur ekkert spilað með Val í sumar en hún lék 12 leiki með Val í fyrrasumar. Hún lék síðast með ÍBV sumarið 2013 áður en hún gekk í raðir Vals.

Þá lék hún fjögur og hálft tímabil í Eyjum en hún á alls 124 meistaraflokksleiki á bakinu og hefur skorað 30 mörk.

Hlíf er orðin lögleg með Eyjaliðinu og gæti spilað sinn fyrsta leik í næstu viku þegar Breiðablik kemur í heimsókn til Vestmannaeyjar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.