Arsenal og Chelsea eigast við í úrslitaleik enska FA bikarsins í dag og verður leikurinn sýndur beint á Stöð 2 Sport 2.
Það er gríðarlega mikið undir fyrir Arsenal sem missir af Evrópusæti í fyrsta sinn í 25 ár með tapi.
Það er minna undir hjá Chelsea sem er búið að tryggja sér þátttöku í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Þó er stoltið afar mikilvægt enda er þetta mikill fjandslagur þar sem bæði félög eru staðsett í London.
Mikel Arteta og Frank Lampard verða á hliðarlínunni en þeir mættust nokkrum sinnum sem leikmenn þegar þeir léku fyrir félögin sem þeir stýra í dag.
Bæði lið hafa unnið bikarinn sex sinnum frá aldamótum. Chelsea vann síðast 2018 og Arsenal 2017.
Leikur dagsins:
16:30 Arsenal - Chelsea (Stöð 2 Sport 2)
Athugasemdir