Fotbolti.net
01.09.20 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson

Umboðsmaður Thiago Silva: Ég man ekki einu sinni hvað hann heitir

Thiago Silva gekk til liðs við Chelsea

Thiago Silva gekk til liðs við Chelsea

Canon

Mynd: Chelsea

Paulo Tonietto, umboðsmaður Thiago Silva, segir það rangt að Fiorentina hafi verið í viðræðum um að fá brasilíska varnarmanninn áður en hann samdi við Chelsea.
Silva gekk í raðir Chelsea á dögunum á frjálsri sölu en hann rann út á samning hjá Paris Saint-Germain eftir úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu.

Mörg lið höfðu áhuga á að fá Silva og var meðal annars ítalska liðið FIorentina í umræðunni en umboðsmaður Silva vísar því til föðurhúsanna.

„Fiorentina hafði samband einu sinni en það var fyrir nokkrum mánuðum. Við töluðum ekki um tölur eða neitt annað og ég man ekki einu sinni hvað yfirmaður íþróttamála hjá Fiorentina heitir eða sá sem hringdi í mig," sagði Tonietto.

„Það var hins vegar annað ítalsk lið sem hafði áhuga á Thiago en það var ekki Milan," sagði hann í lokin.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.