Fotbolti.net
09.09.26 - 16:53
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Rúnar: Forgangsatriði númer eitt að semja við hann

Markahæsti leikmaður liðsins á tímabilinu.

Markahæsti leikmaður liðsins á tímabilinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kennie Chopart er markahæsti leikmaður Fram á tímabilinu með tíu mörk í Bestu deildinni og skoraði auk þess eitt mark í Mjólkurbikarnum.

Hann er á sínu þriðja tímabili með Fram en er með lausan samning eftir tímabilið. Kennie, sem er 36 ára, hefur aldrei skorað jafnmörg mörk og á þessu tímabili á Íslandi en hann er í frekar frjálsu hlutverki í liði Rúnars Kristinssonar.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er áhugi á Kennie úr dönsku B-deildinni en Rúnar telur litlar líkur á því að Kennie haldi til Danmerkur í vetur.
„Ég er að heyra af þessu (áhuganum frá Danmörku) í fyrsta skipti núna, ég held að Kennie verði áfram hjá okkur og engin spurning um að hann sé að fara eitthvað annað," segir Rúnar.

„Ég hafði ekki heyrt af þessu, ég vonast til þess og við reiknum með því að hann verði áfram."

Af hverju er Kennie að spila svona vel?

„Hann fær dálítið frjálsar hendur með hvað hann gerir í leikjunum, maður reynir stundum að halda aftur af honum, en við viljum að hann sæki fram og að hann lyfti sér upp í teig andstæðinganna þegar við erum að sækja. Við erum að spila í þessu fimm manna kerfi og þá getum við leyft báðum bakvörðum að fara hátt upp. Við erum þá með þrjá hafsenta til baka og höfum leyft einum af þeim þremur líka að fara upp völlinn. Við erum mjög sveigjanlegir í okkar leik og erum búnir að þróa þennan leikstíl þannig að mönnum er frjálst að fara hátt upp á völlinn svo framarlega og það er rétt jafnvægi. Menn þurfa að skilja hlutverk hvors annars. Kennie hefur verið ógn fram á við, bæði sem vængbakvörður og líka sem hafsent. Það getur verið óþægilegt fyrir andstæðingana að fá allt í einhvern úr vörninni því menn vita þá kannski ekki hver á að taka við honum."

„Kennie líður vel, er ánægður með hlutverkið sitt og er að spila dálítið frjálst. Hann hefur nýtt það mjög vel í að koma sér inn á teiginn og skorað mörk. Hann hefur líka skorað talsvert úr föstum leikatriðum sem hann gerði ekki jafnmikið af áður. Hann er mikil ógn þar líka."


Hversu mikla áherslu leggur þú á að það verði klárað að framlengja við Kennie?

„Það er forgangsatriði númer eitt. Hann er búinn að vera gríðarlegur fengur fyrir Fram og okkur hér. Hann er búinn að lyfta öllu upp á hærra plan frá fyrsta degi með hans ákefð og vinnusemi á æfingum og fyrir utan æfingar; í líkamsræktarsalnum og öllu þessu. Hann hefur sýnt gott fordæmi og ég held það hafi lyft meistaraflokknum og því sem við kemur liðinu okkar upp. Hann hefur verið fyrirmynd með því maður á þessum aldri sé í þetta góðu formi og hann hleypur hvað mest í liðinu. Þá verða hinir að reyna æfa af sama krafti. Það hefur hjálpað okkur að verða betri," segir Rúnar.

Næsti leikur Fram er heimaleikur gegn Breiðabliki næsta þriðjudagskvöld.
Kennie er fyrirliði Fram.

Kennie er fyrirliði Fram.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Unnu fyrst saman hjá KR.

Unnu fyrst saman hjá KR.

Canon

Mynd: Raggi Óla

Ánægður með sinn mann.

Ánægður með sinn mann.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.22+4653
2Fram22+1445
3KR22+2544
4Breiðablik22+230
5ÍA22-230
6Keflavík22-528
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.