08.09.26 - 22:00
Ívan Guðjón Baldursson
Iraola: Vil ekki að leikmenn séu með reiknivélina uppi

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Andoni Iraola þjálfari Liverpool er spenntur fyrir frumraun sinni sem þjálfari í Meistaradeild Evrópu.

TENGT EFNI
Iraola: Þurfum að læra inn á Barcola
Liverpool tekur á móti Atlético Madrid í stórleik annað kvöld og vill Iraola að sínir menn leggi allt í sölurnar.
„Þetta er mjög sérstakt kvöld fyrir mig. Fyrsti Meistaradeildarleikurinn minn sem þjálfari verður gegn virkilega sterkum andstæðingum. Diego Simeone er stórkostlegur þjálfari, hann hefur náð sögulegum árangri með Atlético og þetta verður erfiður leikur. Ég hef keppt við hann bæði sem leikmaður og þjálfari. Ég veit að hann býr yfir talsvert meiri reynslu heldur en ég, en ég vona að við getum gefið honum góðan leik á morgun," sagði Iraola á fréttamannafundi í dag.
Iraola hefur ekki tekist að hafa betur gegn Simeone á þjálfaraferlinum, hann tapaði þremur leikjum gegn honum við stjórnvölinn hjá Rayo Vallecano og náði einu sinni jafntefli.
„Það er mikilvægt að við setjum mikla orku í þennan leik. Ég vil að menn leggi allt í sölurnar án þess að hugsa um að spara orkuna fyrir seinni hluta leiksins. Ef þú hleypur úr þér lungun og þarft skiptingu á 55. mínútu þá er það frábært. Þá erum við með toppgæða leikmann á vellinum í 55 mínútur og annan toppgæða leikmann í 35 mínútur. Ég vil ekki að leikmenn séu með reiknivélina uppi til að reikna út hvenær þeir eiga að nota orkuna sína. Það er mjög erfitt að halda réttu orkustigi þegar það eru leikir á þriggja daga fresti.
„Við erum með góðan leikmannahóp og getum leyft okkur að leggja allt í sölurnar í hverjum einasta leik."