Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 01. september 2021 16:25
Elvar Geir Magnússon
Yfirlýsing frá Kolbeini: Ég harma mína hegðun og tek harða afstöðu gegn hvers kyns ofbeldi
Kolbeinn Sigþórsson.
Kolbeinn Sigþórsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsmaðurinn Kolbeinn Sigþórsson hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna þeirrar umfjöllunar sem hefur verið í gangi um hann síðustu daga.

Hann segist iðrast og harma hegðun sína á þessum tíma. Ung kona steig fram í viðtali við RÚV síðasta föstudag og lýsti þar ofbeldi og kynferðislegri áreitni af hálfu Kolbeins.

Yfirlýsinguna má sjá hér að neðan:

Yfirlýsing Kolbeins Sigþórssonar 

Á undanförnum árum hef ég átt í erfiðleikum, verið andlega á slæmum stað, mikið meiddur og framtíð ferils míns sem knattspyrnumanns í mikilli hættu. Ég kom mér í aðstæður þar sem ég hegðaði mér með óviðeigandi hætti. Þórhildur Gyða Arnarsdóttir hefur stigið fram og lýst sinni upplifun af atviki á skemmtistaðnum B5 haustið 2017. Vorið 2018 hitti ég Þórhildi Gyðu og vinkonu hennar og hlustaði á þeirra upplifun. 

Ég kannaðist ekki við að hafa áreitt þær eða beitt ofbeldi og neitaði sök. Hegðun mín var hins vegar ekki til fyrirmyndar og baðst ég afsökunar á henni. Ég iðraðist og tók á því ábyrgð og var tilbúinn að leita sátta. Þær höfðu uppi kröfu um afsökunarbeiðni og greiðslu sem ég féllst á. Auk þess greiddi ég 3 milljónir króna til samtakanna Stígamóta og studdi þannig mikilvæga baráttu samtakanna gegn kynferðisofbeldi.

Með þessu var málinu lokið af okkar hálfu. KSÍ var upplýst um framvindu sáttaviðræðna og lyktir þeirra en afneitun KSÍ leiddi til þess að Þórhildi Gyðu fannst hún rænd sinni sátt. Ég hef skilning á því. 

Ég harma mína hegðun á þessum tíma og tek harða afstöðu gegn hvers kyns ofbeldi. Ég er enn markvisst að vinna í mínum málum.  
Athugasemdir
banner
banner