18.09.26 - 12:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hákon spilaði ekki vegna bakmeiðsla - „Ekki alveg kominn tími á að panikka"

Hákon Rafn er varamarkvörður Brentford.

Mynd: KSÍ

Tómas Bent fékk ekki kallið í hópinn.

Mynd: Hearts

Viktor Bjarki gerir tilkall í sæti í A-landsliðið.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Amin Cosic er með U21 landsliðinu.

Mynd: Viking Stavanger

Landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Hákon Rafn er varamarkvörður Brentford.

Mynd: KSÍ

Það vakti athygli í vikunni að Hákon Rafn Valdimarsson varði ekki mark Brentford í leik liðsins gegn Reading í enska deildabikarnum. Hákon er varamarkvörður Brentford og varði mark liðsins í leiknum gegn Birmingham í fyrsta leik Brentford í deildabikarnum á tímabilinu.
Hákon er einn af þremur markvörðum sem voru valdir í íslenska landsliðshópinn í vikunni. Arnar Gunnlaugsson, þjálfari landsliðsins, sagði í viðtali í ChessAfterDark að Hákon væri að glíma við smávægileg bakmeiðsli.

TENGT EFNI
Landsliðshópurinn - Ísak Snær og Rúnar Alex koma inn
„Hann er eitthvað aðeins stífur í baki en læknateymið gaf grænt ljós (á að hann yrði valinn í landsliðið). Við þurfum líka að meta hann, þetta er langur gluggi og við erum með tvo mjög sterka markmenn fyrir utan hann. Vonandi er hann bara í lagi," segir Arnar í þættinum. Hinir tveir markverðirnir eru Elías Rafn Ólafsson (Midtjylland) og Rúnar Alex Rúnarsson (FCK).
Arnar var spurður hvort hann hefði áhyggjur af því hversu lítið Hákon væri að spila með félagsliði sínu.
„Ef þetta væri útileikmaður hefði ég mögulega meiri áhyggjur. En þessir helvítis markmenn, þeir geta verið að til sextugs. Sem dæmi Emiliano Martínez sem byrjaði ekki að spila fyrr en um þrítugt. Þetta er ekki ákjósanlegt, en hann er samt á góðum stað; hjá frábæru félagi í Brentford. Mér finnst ekki alveg kominn tími á að panikka en klárlega eitthvað til að fylgjast með. Ég hef ekki það miklar áhyggjur eins og staðan er í dag," segir Arnar.
Tómas klárlega í myndinni
Í þættinum ræddi hann einnig um Tómas Bent Magnússon; að hann væri klárlega inni í myndinni en hann væri í samkeppni við Hákon Arnar Haraldsson, Ísak Bergmann Jóhannesson, Gylfa Þór Sigurðsson, Andra Fannar Baldursson og Stefán Teit Þórðarson sem fengu kallið í þetta skiptið.
„Auðvitað skoðaði ég hann, frábær strákur sem hefur náð ótrúlega langt á stuttum tíma. En hvern á að taka út? Það er því miður ekki pláss fyrir alla, hann þarf að bíta í það súra epli að vera ekki valinn en hann er klárlega í myndinni."
Möguleiki að Viktor Bjarki verði kallaður úr U21 verkefninu
Viktor Bjarki Daðason er byrjaður að spila og skora með FCK í dönsku úrvalsdeildinni eftir meiðsli. Hann er 18 ára og var valinn í U21 landsliðið frekar en A-landsliðið.
„Það er alltaf verið að meta þetta innan veggja KSÍ, hvað sé best fyrir hvern leikmann. Mátum að það væri betra að hann spili hörkuleiki með U21; fái mínútur. Við höfum hann nálægt okkur og það er ekkert sem mælir á móti því að hann geti komið til móts við A-landsliðið eftir leikina gegn Frökkum og Sviss með U21."
„Þú ert að leitast eftir ólíkum týpum. Ísak (Snær Þorvaldsson) getur gefið okkur hluti og Binni (Brynjólfur Andersen Willumsson) er búinn að gera mjög góða hluti í hollensku úrvalsdeildinni. Þetta er erfitt val, en í þetta skiptið ákváðum við að fara í þessa leið," segir Arnar um samkeppnina í fremst stöðum. Orri Steinn Óskarsson og Andri Lucas Guðjohnsen hafa verið í stóru hlutverki í liðinu og eru í hópnum.
Gefur Amin sterkari stöðu að vera núna í U21
Arnar var spurður út í Amin Cosic sem spilar með norsku meisturunum í Viking. Amin getur valið að spila annað hvort með Bosníu-Hersegóvínu eða Íslandi. Hann er núna í U21 landsliðshópi Íslands.
„Það kom alveg til greina að velja hann. En það er spurning hvenær á að negla menn og á hvaða forsendum. Ég átti samræður við Amin og U21 landsliðsteymið. Það gefur honum sterkari stöðu að vera í U21, það gefur honum tækifæri til að hugsa því að á endanum tekur hann ákvörðun hvað hann velur. Hann getur vegið og metið kosti og galla alla þætti leiksins. Það síðasta sem þú átt að gera í þessari stöðu er að taka fyrsta boði á ballinu, þú þarft að sjá fyrir þér næstu 15 ár, hvar er mér best borgið?"
„Íslandi vantar fleiri sem eru góðir að taka menn á, Amin er geggjaður í því og ég er á því að þakið á honum sé mjög hátt."
„Með því að hann tekur slaginn með U21 er hann ekki að taka slaginn með Bosníu, og svo er þetta endurmetið í næsta glugga. Mér finnst mikilvægt að þetta sé gert á réttum forsendum; að hann komi inn í A-landslið af því hann á það skilið, ekki af því að hann er með eitthvað vegabréf," segir Arnar m.a. um Amin.

Þeir geta verið hvað svekktastir með val dagsins

TENGT EFNI