Fotbolti.net
01.09.26 - 21:44
Brynjar Ingi Erluson

Championship: Swansea á toppnum - Markalaust hjá Andra

Andri og félagar gerðu jafntefli við nýliðanna

Andri og félagar gerðu jafntefli við nýliðanna

Canon

Mynd: Blackburn Rovers

Swansea City er á toppi ensku B-deildarinnar eftir fjóra leiki en liðið náði í þriðja sigur sinn með því að leggja Watford að velli, 2-0, í kvöld.
Swansea fer frábærlega af stað á tímabilinu en Ji-Sung Eom og Adam Idah skoruðu mörk liðsins á tuttugu mínútna kafla í fyrri hálfleik. Velska liðið er á toppi deildarinnar með tíu stig en Watford situr í 13. sæti með fimm stig.

Andri Lucas Guðjohnsen lék allan leikinn fyrir Blackburn Rovers sem gerði markalaust jafntefli við nýliða Lincoln. Blackburn lék manni færri síðustu tuttugu mínúturnar eftir að Tom Atcheson fékk sitt annað gula spjald. Liðið er í 12. sæti með fimm stig.

West Ham vann þá frábæran 4-2 sigur gegn Wolves í Lundúnum. Divine Mukasa, sem kom á láni frá Manchester City á dögunum, skoraði tvennu og þeir Jarrod Bowen og Kostas Mavropanos sitt markið hvor.

Mavropanos varð reyndar einnig fyrir því óláni að skora sjálfsmark aðeins fimm mínútum eftir að hann komst á blað. Þetta var fyrsti sigur Hamranna á tímabilinu og eru þeir í ellefta sæti með fimm stig. Wolves er í þriðja sæti með sjö stig.

Birmingham 1 - 1 Southampton
0-1 Keven Schlotterbeck ('45 )
1-1 August Priske ('55 )

Lincoln City 0 - 0 Blackburn
Rautt spjald: Tom Atcheson, Blackburn ('69)

Portsmouth 0 - 2 Derby County
0-1 Sammie Szmodics ('16 )
0-2 Lars-Jorgen Salvesen ('62 )

Preston NE 1 - 3 Bristol City
0-1 Scott Twine ('4 )
1-1 Caleb Wiley ('51 )
1-2 Lisav Eissat ('79 )
1-3 Dom Ballard ('86 )

Sheffield Utd 3 - 2 Bolton
0-1 Xavier Simons ('1 )
1-1 Japhet Tanganga ('4 )
1-2 Sam Dalby ('67 )
2-2 Patrick Bamford ('68 )
3-2 Romelle Donovan ('90 )

Stoke City 1 - 0 Norwich
1-0 Ethan Galbraith ('13 )

Swansea 2 - 0 Watford
1-0 Ji-Sung Eom ('8 )
2-0 Adam Idah ('29 )

West Ham 4 - 2 Wolves
1-0 Divine Mukasa ('33 )
2-0 Jarrod Bowen ('42 , víti)
2-1 Marshall Munetsi ('44 )
3-1 Divine Mukasa ('53 )
4-1 Konstantinos Mavropanos ('64 )
4-2 Konstantinos Mavropanos ('69 , sjálfsmark)

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Swansea4+610
2Charlton Athletic3+39
3QPR3+37
4Wolves4+27
5Bolton4+17
6Middlesbrough3+26
7West Brom3+16
8Millwall3+16
9Southampton4+65
10West Ham4+25
11Birmingham405
12Blackburn405
13Watford4-15
14Bristol City4-15
15Lincoln City4-24
16Derby County4-24
17Cardiff City303
18Sheffield Utd4-13
19Norwich4-23
20Portsmouth4-33
21Stoke City4-53
22Wrexham3-12
23Preston NE4-41
24Burnley3-51
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.