Fotbolti.net
27.10.26 - 20:08
Ívan Guðjón Baldursson

Xhaka fær leyfi til að spila eftir vottorðamálið

Xhaka fær leyfi til að spila eftir vottorðamálið
Canon

Mynd: EPA

Svissnesku landsliðsmennirnir Granit Xhaka og Breel Embolo hafa báðir fengið leyfi til að spila með Sviss í næsta landsleikjahléi eftir rannsókn á fölsuðum Covid vottorðum sem leikmennirnir sýndu fram á í faraldrinum.
Xhaka fékk falsað Covid vottorð því hann treysti ekki bólusetningum
TENGT EFNI

Xhaka fékk falsað Covid vottorð því hann treysti ekki bólusetningum

Landsliðsfélagarnir voru ekki með Sviss í síðasta landsleikjahléi vegna málsins en hafa fengið leyfi til að snúa aftur.

„Við skoðuðum málið frá öllum hliðum og tókum í kjölfarið upplýsta ákvörðun. Við erum sannfærðir um að það sé ábyrg og rétt ákvörðun að leyfa leikmönnunum að snúa aftur í landsliðið í nóvember," sagði Pierluigi Tami, yfirmaður í svissneska landsliðinu.

Leikmennirnir fengu einnig skilorðsbundna 150 þúsund evra sekt, sem þeir þurfa ekki að greiða nema þeir gerist sekir um frekari brot á næstu tveimur árum.

Óljóst er hvort Xhaka heldur fyrirliðabandinu en það er ákvörðun sem Murat Yakin, landsliðsþjálfari Sviss, þarf að taka.

Sviss er á toppi síns riðils í B-deild Þjóðadeildarinnar með fullt hús stiga eftir leikina fjóra í síðasta landsleikjahlé. Liðið spilar við Slóveníu og Skotland í nóvember.

Xhaka er 34 ára gamall og er fyrirliði Sunderland í ensku úrvalsdeildinni, en var fyrir það fyrirliði hjá Arsenal og Borussia Mönchengladbach meðal annars.
Xhaka fær leyfi til að spila eftir vottorðamálið
Canon

Mynd: Sunderland

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.