Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 01. október 2022 06:00
Fótbolti.net
Af nægu að taka í útvarpsþættinum Fótbolti.net - Hlustaðu í beinni
Mynd: Fótbolti.net
Elvar Geir og Benedikt Bóas fara yfir allt það helsta í fótboltanum í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 milli 12 og 14 í dag.

Smelltu hér til að hlusta á þáttinn í beinni

A-landsliðið sýndi karakter í Tirana og U21-landsliðið var hársbreidd frá því að koma sér í framlengingu í Tékklandi. Hvað var jákvætt og hvað var neikvætt?

Davíð Kristján Ólafsson, bakvörður sænska úrvalsdeildarliðsins Kalmar, verður á línunni en hann átti mjög öflugan landsleikjaglugga og hefur fengið verðskuldað lof fyrir frammistöðu sína.

Rýnt er í bikarúrslitaleikinn sem er framundan og spáð í komandi leiki í 'ofsalegum október' í Bestu deildinni.

Þá er enska úrvalsdeildin að fara aftur á fulla ferð. Ingimar Helgi Finnsson, stuðningsmaður Tottenham, verður á línunni og gefur skýrslu úr Norður-Lundúnaslag Arsenal og Tottenham.


Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Athugasemdir
banner
banner
banner