01.10.26 - 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Bellamy svarar gagnrýni - „Gefur ekki rétt til að segja hvað sem við viljum"

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Wales vann kærkominn sigur í kvöld þegar liðið lagði tíu leikmenn Noregs af velli. Neco Williams skoraði sigurmarkið í 2-1 sigri úr aukaspyrnu stuttu eftir að Torbjorn Heggem var rekinn af velli.
Þar með lauk sex leikja hrinu Wales án sigurs. Sú hrina hófst með tapi gegn Bosníu og Hersegóvínu í umspili um sæti á HM í mars. Craig Bellamy, landsliðsþjálfari Wales, fékk mikla gagnrýni fyrir að fara í viðræður við Burnley í sumar. Hann svaraði þeirri gagnrýni í kvöld.

„Það er ekki ég heldur á ég börn og konu, þau sjá þetta. Ég hef verið í þessu umhverfi og ég var það sem leikmaður, en ég held að það séu leiðir til að við getum talað við fólk, og bara vegna þess að þetta er leikurinn sem við elskum, þá gefur það okkur ekki rétt til að halda að við getum sagt hvað sem við viljum," sagði Bellamy.
„Við erum svo lítið land, af hverju getum við ekki staðið með hvert öðru? Ég er ekki að segja að allir séu hafnir yfir gagnrýni, langt frá því. En þetta er of auðvelt og við erum of fljót á okkur.“
„Við erum svo lítið land, af hverju getum við ekki staðið með hvert öðru? Ég er ekki að segja að allir séu hafnir yfir gagnrýni, langt frá því. En þetta er of auðvelt og við erum of fljót á okkur.“