Fotbolti.net
01.10.26 - 22:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Leao: Ronaldo er átrúnaðargoðið mitt

Leao: Ronaldo er átrúnaðargoðið mitt
Canon

Mynd: EPA

Portúgal vann 4-2 sigur á Danmörku í Þjóðadeildinni í kvöld en liðið var án Cristiano Ronaldo sem yfirgaf herbúðir liðsins eftir ósætti við Jorge Jesus, landsliðsþjálfara Portúgals.

Það vakti athygli að Rafael Leao spilaði í treyju númer sjö í kvöld en Ronaldo hefur spilað í þeirri treyju.
Jesus um Ronaldo: Mun útskýra allt
TENGT EFNI

Jesus um Ronaldo: Mun útskýra allt

„Hann er átrúnaðargoðið mitt úr æsku. Sjöan hefur sérstaka þýðngu fyrir mig því það er fæðingadagur barnana minna. Ég reyndi einfaldlega að heiðra treyjuna og njóta mín. Aðalatriðið er að vinna og standa sig vel," sagði Leao.

Portúgal er með fullt hús stiga á toppi riðils fjögur eftir þrjár umferðir. Liðið fær Noreg í heimsókn þann 4. október.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.