Fotbolti.net
01.10.26 - 11:18
Elvar Geir Magnússon

Örn Bragi fer ekki í KR og heldur tryggð við Þrótt (Staðfest)

Örn Bragi Hinriksson með bikarinn fyrir 2. sæti Lengjudeildarinnar.

Örn Bragi Hinriksson með bikarinn fyrir 2. sæti Lengjudeildarinnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Örn Bragi Hinriksson hefur skrifað undir nýjan samning við Þrótt. Gleðifréttunum fjölgar fyrir stuðningsmenn Þróttar en lykilmenn hafa skrifað undir nýja samninga eftir að liðið tryggði sér sæti í Bestu deildinni.

Örn Bragi var sterklega orðaður við KR og þá sýndi Valur honum áhuga en hann ákvað að vera áfram hjá uppeldisfélaginu.
Aron Snær og Siggi Lár búnir að framlengja við Þrótt (Staðfest)
TENGT EFNI

Aron Snær og Siggi Lár búnir að framlengja við Þrótt (Staðfest)

Hann er 19 ára leikmaður sem var valinn á bekkinn í úrvalsliði tímabilsins í Lengjudeildinni.

„Sóknarmaður sem veldur miklum usla með hlaupum bæði með og án bolta. Óútreiknanlegur í kringum teig andstæðingana og með einstakt lag fyrir því að koma sér í færi og skora mörk. Vinnur auk þess vel fyrir liðið varnarleik bæði í pressu og með hlaupum til baka," sagði í umfjöllun Fótbolta.net um Örn Braga í sumar.

Þróttur komst upp í efstu deild eftir tíu ára fjarveru með því að vinna Fylki 1-0 í úrslitaleik umspilsins.

Örn Bragi fer ekki í KR og heldur tryggð við Þrótt (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.