Fotbolti.net
01.10.26 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Hjólaði í Ronaldo í sumar: Heppinn að vera ekki dæmdur

Hjólaði í Ronaldo í sumar: Heppinn að vera ekki dæmdur
Canon

Mynd: EPA

Rui Pinto, forsprakkinn á bak við Football Leaks vefsíðuna, hefur birt mikið af færslum á samfélagsmiðlinum X síðustu daga.
Vilja loka forsprakka Football Leaks inni í 25 ár
TENGT EFNI

Vilja loka forsprakka Football Leaks inni í 25 ár

Þegar farið er aftur í tímannn og eldri færslur frá Pinto skoðaðar má sjá eina áhugaverða færslu frá því í sumar, nokkrum dögum eftir að Portúgal var slegið úr leik í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins.

Þar ræðir Pinto um samlanda sinn Cristiano Ronaldo, sem hefur verið afar umdeildur í gegnum tíðina.

„Ég trúi því að Cristiano Ronaldo hafi verið besti leikmaður fótboltasögunnar þegar hann var upp á sitt besta. Hann hefur skrifað söguna á ferli sínum sem fótboltamaður, en það er líka myrkri hlið," skrifaði Pinto 9. júlí.

„Í gegnum Football Leaks uppljóstraði ég um skattsvik hans sem varð til þess að hann var dæmdur á Spáni, og nauðgunina á Kathryn Mayorga í Las Vegas, sem hafði ekki alvarlegri afleiðingar í för með sér eingöngu vegna tæknilegra galla í dómskerfinu."

Pinto hélt áfram að hjóla í Ronaldo og sagði að nú væri kominn tími til að hann myndi leggja landsliðsskóna á hilluna.

„Með tímanum, er gæði hans á fótboltavellinum tóku að minnka með hækkandi aldri, kom egóið hans sífellt betur í ljós. Víðamikil áhrif hans komu í ljós og byrjunarliðssætið í landsliðinu varð ósnertanlegt. Hann hætti að þjóna liðinu og byrjaði að hafa neikvæð áhrif.

„Að því sögðu, þá bíð ég spenntur eftir því að Ronaldo tilkynni að hann leggi landsliðsskóna á hilluna. Það er kominn tími til að enda þennan kafla. Nóg er nóg."


Rui Pinto fékk ósk sína mögulega uppfyllta í gær þegar Ronaldo yfirgaf landsliðsbúðir Portúgal í fýlukasti.
Hjólaði í Ronaldo í sumar: Heppinn að vera ekki dæmdur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hjólaði í Ronaldo í sumar: Heppinn að vera ekki dæmdur
Canon

Mynd: EPA

Hjólaði í Ronaldo í sumar: Heppinn að vera ekki dæmdur
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.