Fotbolti.net
01.10.26 - 17:00
Elvar Geir Magnússon

Öruggur sigur Argentínu í fyrsta leik eftir tilkynningu Messi

Nico Paz átti frábæran leik, var með mark og stoðsendingu.

Nico Paz átti frábæran leik, var með mark og stoðsendingu.

Canon

Mynd: EPA

Argentína 4 - 0 Bólivía

Lautaro Martínez, Nico Paz, Cristian Romero og José Manuel López skoruðu mörk Argentínu sem vann öruggan 4-0 sigur gegn Bólivíu í vináttulandsleik.

Þetta var fyrsti leikur argentínska liðsins eftir að Lionel Messi, einn besti leikmaður sögunnar, tilkynnti að hann hefði ákveðið að leggja landsliðsskóna á hilluna. Hann var ekki með gegn Bólivíu en mun leika kveðjuleik gegn Benín í næstu viku.
Messi leggur landsliðsskóna á hilluna (Staðfest)
TENGT EFNI

Messi leggur landsliðsskóna á hilluna (Staðfest)

Romero var fyrirliði gegn Bólivíu en Argentína komst yfir þegar Martínez skoraði með skoti rétt fyrir utan teig. Paz skoraði annað markið á glæsilegan hátt áður en Romero skoraði með skalla og Lopez skoraði af stuttu færi.

Paz, sem er 22 ára leikmaður Como, er ætlað að taka við hlutverki Messi hjá argentínska landsliðinu og hann var frábær í þessum leik, skilaði marki og stoðsendingu.
Lionel Scaloni, landsliðsþjálfari Argentínu.

Lionel Scaloni, landsliðsþjálfari Argentínu.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.