Fotbolti.net
01.10.26 - 11:17
Kári Snorrason

Líklegt byrjunarlið Íslands - Hræringar í vörninni?

Herði er spáð byrjunarliðssæti.

Herði er spáð byrjunarliðssæti.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eimskip
Ísland mætir Búlgaríu á Laugardalsvelli næstkomandi laugardag í C-deild Þjóðadeildarinnar. Liðið vann sterkan 3-0 útisigur á Lúxemborg á þriðjudag eftir bragðdauft jafntefli gegn Eistum í leiknum þar áður.

Ísland er á toppi riðilsins þegar tveir leikir hafa verið spilaðir og eru tveir leikir eftir í yfirstandandi glugga.

Blaðamannafundur Íslands fyrir leikinn á laugardag verður á morgun en Fótbolti.net bíður ekki boðanna og stillir hér upp líklegu byrjunarliði Íslands fyrir leikinn.
Við spáum því að Arnar Gunnlaugsson geri aðeins eina breytingu á byrjunarliði sínu frá sigrinum gegn Lúxemborg.

Stefán Teitur Þórðarson fór meiddur af velli um miðbik síðari hálfleiks og kom Hörður Björgvin Magnússon inn í hans stað. Daníel Leó Grétarsson færðist hægra megin í vörnina eftir innkomu Harðar.

„Vonandi er þetta smá högg, hann stífnaði vel upp. Ég á ekki von á að þetta séu alvarleg meiðsli hjá honum,“ sagði Arnar í viðtali við Fótbolta.net eftir sigurinn á Lúxemborg.

Hann sagði jafnframt að Daníel Leó og Hörður Björgvin hafa náð vel saman í þeim leikjum sem þeir hafa spilað saman þrátt fyrir að vera báðir örvfættir. Því spáum við því að Hörður komi inn í stað Stefáns.

Aron Einar Gunnarsson gerir jafnframt tilkall í miðvarðarstöðuna en fyrst að Hörður kom inn fyrir Stefán á þriðjudag er búist við að hann sé ofar í goggunarröðinni.

Aron ekki komið við sögu í glugganum - Mun hann ná leikjametinu?
TENGT EFNI

Aron ekki komið við sögu í glugganum - Mun hann ná leikjametinu?


Arnar sagði jafnframt í viðtalinu að nú reyndi á hópinn þar sem liðið er að fara spila þriðja leikinn á einni viku. Skyldi hann ráðast í frekari breytingar gæti Mikael Egill Ellertsson myndi víkja úr liðinu og inn í hans stað kæmi annað hvort Kristall Máni Ingason eða Jón Dagur Þorsteinsson.

Það vakti athygli að Jón Dagur, sem var í byrjunarliðinu gegn Eistlandi, hafi ekki komið við sögu gegn Lúxemborg.

Gylfi Þór Sigurðsson spilaði allan leikinn gegn Lúxemborg og var hann einn af bestu mönnum vallarins. Hann sagðist sjálfur búast við því að geta byrjað aftur á laugardaginn í viðtali eftir leik.

Skyldi Gylfi ekki vera klár á laugardaginn gæti Hákon færst aftur á miðjuna eða Andri Fannar Baldursson komið inn. Andri hefur ekki komið við sögu í glugganum hingað til en er að gera gott mót með Kasimpasa í Tyrklandi.

Fór meiddur af velli gegn Lúxemborg.

Fór meiddur af velli gegn Lúxemborg.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Blaðamannafundur Íslands er á morgun.

Blaðamannafundur Íslands er á morgun.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Byrjaði gegn Eistum en kom ekki við sögu gegn Lúxemborg.

Byrjaði gegn Eistum en kom ekki við sögu gegn Lúxemborg.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Spilaði 90 mínútur á þriðjudag.

Spilaði 90 mínútur á þriðjudag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.