01.10.26 - 11:00
Elvar Geir Magnússon
Etihad hótar að höfða mál gegn ensku úrvalsdeildinni

Heimavöllur Manchester City er kenndur við Etihad.

Mynd: EPA

Flugfélagið Etihad, aðalstyrktaraðili Manchester City, íhugar að höfða mál gegn ensku úrvalsdeildinni eftir að hún staðfesti brot félagsins á fjárhagsreglum deildarinnar.
Hvergi er Etihad nefnt í skýrslunni sem var gefin út en flugfélagið, sem er í eigu Sameinuðu arabísku furstadæmana, segir málið hafa skaðleg áhrif á sig.

TENGT EFNI
Enska úrvalsdeildin staðfestir niðurstöðuna
„Etihad hafnar alfarið öllum niðurstöðum eða ályktunum sem benda til þess að flugfélagið hafi nokkurn tímann verið þátttakandi í óviðeigandi viðskiptasamningum," segir í yfirlýsingu Etihad.
Etihad segir að enska úrvalsdeildin hefði ekki sett sig í samband við sig meðan á rannsókn þeirra stóð og yfirlýsingin er í takt við skilaboð Ferran Soriano, framkvæmdastjóra Manchester City, til starfsmanna félagsins.
„Etihad hefur miklar áhyggjur af því hvernig þessu máli hefur verið miðlað opinberlega. Skortur á skýrleika og gagnsæi hefur haft skaðleg áhrif á Etihad. Enska úrvalsdeildin verður að taka ábyrgð á afleiðingum þess hvernig þessar niðurstöður hafa verið kynntar. Etihad mun verja hagsmuni sína og leita viðeigandi lögfræðiráðgjafar varðandi úrræði sem í boði eru," segir jafnframt í yfirlýsingunni.
„Etihad er afar stolt af langtímasambandi sínu við Manchester City. Félagið hefur borið nafn Etihad með stolti og á leikvangi sínum í mörg ár. Skuldbinding okkar við Manchester City, stuðningsmenn þess og sameiginlegt samstarf okkar er enn sterk."