Fotbolti.net
01.11.19 - 14:45
Magnús Már Einarsson

Meiðsli hjá Tottenham - Óánægja með landsliðsval Lo Celso

Mauricio Pochettino.

Mauricio Pochettino.

Canon

Mynd: Getty Images

Erik Lamela og Hugo Lloris verða áfram fjarri góðu gamni í liði Tottenham í mikilvægum leik gegn Everton á sunnudag vegna meiðsla.

Tottenham er í 11. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og það gæti hitnað undir stjórastólnum hjá Mauricio Pochettino ef illa fer á sunnudag.

Vinstri bakvörðurinn Danny Rose tekur út leikbann á sunnudag og það skýrist ekki fyrr en rétt fyrir leik hvort varnarmaðurinn Jan Vertonghen geti spilað en hann er að glíma við meiðsli aftan í læri.
Pochettino er ósáttur við að Giovani Lo Celso sé í landsliðshópi Argentínu fyrir komandi leiki. Lo Celso meiddist í landsliðsverkefni í september og hefur einungis komið tvívegis inn á sem varamaður hjá Tottenham síðan þá.

„Í hreinskilni sagt þá er ég ekki ánægður en ég samþykki þetta því ég skil landsliðið. Ég styð alltaf ákvörðun landsliðsins því sem fyrrum leikmaður veit ég hvað það þýðir að spila fyrir þjóð þína," sagði Pochettino.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City6+1118
2Arsenal6+515
3Brighton6+1313
4Brentford6+610
5Everton6+310
6Chelsea6+210
7Leeds6+39
8Hull City6+29
9Liverpool609
10Ipswich Town6-39
11Newcastle6-38
12Crystal Palace6-37
13Man Utd606
14Coventry6-66
15Nott. Forest6-35
16Aston Villa6-55
17Sunderland6-64
18Bournemouth6-63
19Tottenham6-63
20Fulham6-42
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.