Fotbolti.net
01.11.26 - 09:23
Brynjar Ingi Erluson

Mourinho um Trent: Það gerir mig leiðan

Trent Alexander-Arnold fær lítið að spila

Trent Alexander-Arnold fær lítið að spila

Canon

Mynd: EPA

Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, segir það gera sig leiðan að þurfa að halda tveimur hægri bakvörðum utan liðsins.
Portúgalski þjálfarinn hefur kosið að nota úrúgvæska miðjumanninn Federico Valverde í hægri bakvarðarstöðunni frekar en Trent Alexander-Arnold og Denzel Dumfries.

Valverde hefur áður leyst þessa stöðu af hendi, en er miðjumaður að upplagi á meðan hinir tveir hafa leikið sem bakverðir allan sinn feril.

Mourinho segir stöðuna erfiða, en að leikmennirnir skilji að hann sé að taka þær ákvarðanir sem hann telur bestar fyrir liðið.

„Staðan með Trent? Hún særir mig.“

„Við vorum með áætlun um að hafa tvo leikmenn í hverja stöðu, en nú er ég að nota þriðja leikmanninn í stað þeirra (Trent og Dumfries) og það gerir mig leiðan.“

„Eins og staðan er núna tel ég betra að nota Fede (Valverde) þarna. Hann er sókndjarfari en hinir tveir í augnablikinu.“

„Við útskýrðum stöðuna fyrir Trent og Dumfries og þeir sættu sig báðir við ákvörðunina því þeir skilja hvað er best fyrir liðið. En á endanum munu allir fá að spila,“
sagði Mourinho.

Trent hefur aðeins leikið 345 mínútur í sjö leikjum á tímabilinu, á meðan Dumfries hefur fengið 596 mínútur í tíu leikjum.

Trent hefur verið orðaður við endurkomu til síns gamla félags, Liverpool, að undanförnu, en Chelsea hefur einnig verið nefnt til sögunnar. Ekki er útilokað að hann yfirgefi Real Madrid á láni í janúarglugganum.
Mourinho kýs frekar að nota Valverde

Mourinho kýs frekar að nota Valverde

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.