Fotbolti.net
01.11.26 - 10:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Nainggolan á leið í fangelsi

Nainggolan á leið í fangelsi
Canon

Mynd: EPA

Radja Nainggolan, fyrrum leikmaður Roma og Inter, á yfir höfði sér tveggja ára fangelsi fyrir kókaínsmygl.
Nainggolan er 38 ára belgískur miðjumaður en hann spilaði með Cagliari, Roma og Inter frá 2010-2021.

Hann var handtekinn í janúar í fyrra í tengslum við rannsókn á kókaínsmygli frá Suður Ameríku til Evrópu í gegnum heimaborgina hans Antwerp. Á þessum tíma var talað um að það hafi verið gerðar 30 húsleitir í Antwerp og Brussel. Þá var bíll Nainggolan dreginn í burtu.

Samkvæmt Goal.com á hann yfir höfði sér tveggja ára dóm og 105 þúsund evru sekt fyrir peningaþvætti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.