Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 01. desember 2019 20:42
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Grikkland: Sverrir Ingi skoraði í toppslagnum
Sverrir Ingi Ingason skoraði í toppslagnum.
Sverrir Ingi Ingason skoraði í toppslagnum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Olympiacos 1-1 PAOK
0-1 Sverrir Ingi Ingason ('29)
1-1 Mathieu Valbuena, víti ('64)

Það var stórleikur á dagskránni í Grikklandi í kvöld þegar Olympiacos og PAOK mættust.

Íslenski landsliðsmaðurinn Sverrir Ingi Ingason var í byrjunarliði PAOK og hann kom þeim yfir á 29. mínútu. Sverrir kom boltanum í netið eftir aukaspyrnu.

PAOK var með forystuna þar til á 64. mínútu en þá skoraði Frakkinn Mathieu Valbuena úr vítaspyrnu fyrir Olympiacos og jafnaði þar með metin, ekki var meira skorað og 1-1 lokatölur í þessum toppslag.

Olympiacos er í toppsætinu með 28 stig, PAOK er með jafn mörg stig en markatala Olympiacos er betri.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner