Fotbolti.net
02.02.21 - 01:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Joshua King til Everton (Staðfest)

Joshua King.

Joshua King.

Canon

Mynd: Getty Images

Fyrir ári síðan var norski sóknarmaðurinn Joshua King sterklega orðaður við Manchester United. Það var hins vegar ekkert af því.

Ári seinna fékk hann að skipta um félag á gluggadegi því hann er genginn í raðir Everton.
Hann fékk að velja á milli Everton og Fulham, og var hann lengi að ákveða sig. Hann valdi hins vegar Everton að lokum og skrifar undir samning út tímabilið.

Norðmaðurinn hefur skorað 48 mörk í 161 leik í ensku úrvalsdeildinni á ferlinum.

Hinn 29 ára gamli King hefur leikið með Bournemouth frá 2015 en verður núna liðsfélagi Gylfa Þórs Sigurðssonar hjá Everton. Kaupverðið á honum gæti farið upp í allt að 5 milljónir punda samkvæmt Guardian.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.