Víkingur hefur gengið frá kaupum á Ármanni Inga Finnbogasyni frá ÍA og gerir hann fjögurra ára samning við félagið. Fótbolti.net fjallaði um yfirvofandi félagaskipti í gærkvöldi.
Ármann er örvfættur hægri kantmaður sem fæddur er árið 2004 og er uppalinn hjá ÍA. Hann lék á láni hjá Grindavík í Lengjudeildinni síðasta sumar en lék sumarið 2023 í Lengjudeildinni með ÍA og 2024 í Bestu deildinni. Hann kom með beinum hætti að níu mörkum í deild og bikar á síðasta tímabili.

„Ármann er mjög áræðinn og leikinn kantmaður með góðan vinstri fót og hefur mikið af þeim eiginleikum sem kantmaður Víkings þarf að hafa. Það verður mjög spennandi að fylgjast með honum í sumar," segir Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi, í tilkynningu félagsins.
„Við óskum Ármanni Inga alls hins besta í nýju umhverfi og þökkum honum fyrir hans framlags til félagsins. Um leið vonumst við til að sjá hann aftur í ÍA-treyjunni síðar á ferlinum," segir í tilkynningu ÍA.
Sagt hefur verið frá því að Ármann verði lánaður til Þórs út komandi tímabil og verður fróðlegt að sjá hvort það raungerist, en von er á frekara viðtali við Kára seinna í dag.
Athugasemdir