Fotbolti.net
02.02.26 - 22:05
Brynjar Ingi Erluson

England: Frábær sigur Sunderland í nýliðaslag

Chemsdine Talbi skoraði geggjað mark

Chemsdine Talbi skoraði geggjað mark

Canon

Mynd: EPA

Sunderland 3 - 0 Burnley
1-0 Axel Tuanzebe ('9 , sjálfsmark)
2-0 Habib Diarra ('32 )
3-0 Chemsdine Talbi ('72 )
Sunderland vann öruggan 3-0 sigur á Burnley í nýliðaslag í 24. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á leikvangi ljóssins í kvöld.

Habib Diarra, sem kom inn í byrjunarliðið fyrir þennan leik, átti frábæran leik. Hann átti stóran þátt í fyrsta markinu á 9. mínútu er skot hans fór af Axel Tuanzebe, varnarmanni Burnley, og breytti um stefnu. Markvörðurinn Martin Dubravka var farinn í hina áttina og átti því aldrei möguleika á að verja.

Diarra var aftur á ferðinni á 32. mínútu leiksins. Eftir frábæran spilkafla kom boltinn inn á teiginn, datt af varnarmanni Burnley og út á Diarra sem þrumaði boltanum í netið. Allt rosalega óheppilegt hjá Burnley í þessum leik.

Sunderland var mun betri aðilinn í leiknum og verðskuldaði þriðja markið sem Chemsdine Talbi gerði á 72. mínútu með frábæru skoti fyrir utan teig sem hafnaði í þverslánni og inn.

Sannfærandi hjá Sunderland sem vann 3-0 sigur og er nú í 8. sæti með 36 stig en Burnley áfram í næst neðsta sæti með 15 stig.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.