Guðfinnur Þór Leósson er genginn í raðir Fylkis. Hann kemur á frjálsri sölu frá ÍA.
Hann er fæddur árið 1999 og getur bæði spilað á miðjunni og í vörninni.
Hann er uppalinn hjá ÍA og hefur einnig leikið með venslaliðinu Kára, Víkingi Ólafsvík og Aftureldingu á ferlinum. Alls á hann skráða 212 meistaraflokksleki og 26 mörk.

Á sínum tíma lék hann alls fjóra leiki fyrir U16 og U17.
Hann er annar leikmaðurinn sem Fylkir nælir í eftir að Heimir Guðjónsson tók við síðasta haust, en Hlynur Sævar Jónsson kom sömuleiðis til Fylkis frá ÍA fyrr í vetur.
Athugasemdir