Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 23:03
Brynjar Ingi Erluson
Jeremy Jacquet gengur í raðir Liverpool í sumar (Staðfest)
Jeremy Jacquet gengur til liðs við Liverpool í sumar
Jeremy Jacquet gengur til liðs við Liverpool í sumar
Mynd: EPA
Englandsmeistarar Liverpool staðfestu kaupin á franska miðverðinum Jeremy Jacquet frá Rennes í kvöld, en hann mun ekki ganga formlega í raðir félagsins fyrr en í sumar.

Liverpool náði samkomulagi við Rennes um kaupin í dag en kaupverðið nemur um 60 milljónum punda.

Félagið greiðir 55 milljónir punda og fimm milljónir í árangurstengdar greiðslur.

Liverpool hafði betur gegn Chelsea í baráttunni um Jacquet, en Bayern München og Manchester United höfðu einnig áhuga ásamt fleiri stórliðum.

Jacquet, sem er tvítugur, er talinn einn efnilegasti miðvörður Evrópu um þessar mundir, en hann gerir fimm ára samning með möguleika á að framlengja um eitt ár til viðbótar.

Richard Hughes, yfirmaður íþróttamála hjá Liverpool, sá um viðræðurnar og á heiðurinn að hafa sannfært franska U21 árs landsliðsmanninn að velja Liverpool fram yfir önnur félög.

Jacquet hefur spilað 18 leiki með Rennes á þessari leiktíð og á 5 landsleiki að baki með U21 árs landsliði Frakka.

„Það er mikill heiður að skrifa undir hjá Liverpool, sem er eitt af bestu fótboltafélagum heims" sagði Jacquet við undirskrift.


Athugasemdir
banner
banner