Jón Dagur Þorsteinsson er genginn í raðir norska félagsins Brann en hann kemur á láni frá þýska félaginu Hertha Berlin út tímabilið í Þýskalandi.
Fyrstu leikir Jóns Dags gætu verið gegn Bologna seinna í þessum mánuði en liðin mætast í tveggja leikja einvígi umspilinu um sæti í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.
Fyrstu leikir Jóns Dags gætu verið gegn Bologna seinna í þessum mánuði en liðin mætast í tveggja leikja einvígi umspilinu um sæti í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.
„Þetta var auðvelt val fyrir mig. Brann er félag með mikinn metnað sem vill berjast á toppi deildarinnar og spilar marga spennandi leiki, þar á meðal í Evrópudeildinni. Ég þekki Frey og nokkra leikmenn og þetta var gott tækifæri fyrir mig," segir Jón Dagur m.a. í viðtali á heimasíðu Brann.
Hann er 27 ára vængmaður sem uppalinn er hjá HK og hélt ungur til Fulham á Englandi. Þaðan fór hann til Danmerkur og eftir að hafa spilað með Vendsyssel og AGF fór hann til OH Leuven í Belgíu. Hann var svo keyptur til Hertha Berlin sumarið 2024.
Freyr Alexandersson er þjálfari Brann og þrír Íslendingar voru fyrir í leikmannahópnum. Eggert Aron Guðmundsson kom síðasta vetur til Brann, síðasta sumar samdi svo Sævar Atli Magnússon við félagið og Kristall Máni Ingason skrifaði undir í síðustu viku.
Jón Dagur hefur verið í takmörkuðu hlutverki í Berlín. Hann var ónotaður varamaður í fjórum leikjum í röð í þýsku B-deildinni áður en kom að félagaskiptunum.
Athugasemdir



