Ítalskir fjölmiðlar segja að franski sóknarmaðurinn Jean-Philippe Mateta hafi fallið á læknisskoðun hjá AC Milan. Mateta hefur verið að spila í gegnum hnémeiðsli á tímabilinu.
Meiðslin hafa ekki hamlað honum mikið í markaskorun þar sem hann er með átta úrvalsdeildarmörk fyrir Crystal Palace.
Franski landslismaðurinn vill yfirgefa Palace og félagið hafði samþykkt að selja hann til AC Milan fyrir um 30 milljónir punda.

Mateta fór í læknisskoðun hjá AC Milan í gær en félagið ákvað að láta hann í frekari skoðun á hné í kjölfarið. Ítalskir fjölmiðlar segja nú að ekkert verði af skiptunum.
Spurning er hvaða áhrif þetta mun hafa en Palace hafði þegar samið við Wolves um kaup á Jörgen Strand Larsen til að fylla skarð Mateta en þau kaup eru ekki frágengin. Úlfarnir hafa þá verið að vinna í að fá Adam Armstrong (Southampton) og Che Adams (Torino).
Mögulegt er að þessar fréttir af Mateta geri það að verkum að ekkert verði af neinum af þessum félagaskiptum.
Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 í kvöld. Fótbolti.net stendur vaktina og færir ykkur allar helstu fréttir.
Athugasemdir