Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 11:24
Elvar Geir Magnússon
Merson: Óskiljanlegt að Liverpool ætlar ekki að taka Jacquet strax
Jérémy Jacquet er í læknisskoðun hjá Liverpool.
Jérémy Jacquet er í læknisskoðun hjá Liverpool.
Mynd: EPA
Liverpool hefur unnið baráttuna um varnarmanninn tvítuga Jérémy Jacquet hjá Rennes.

Liverpool er að kaupa leikmanninn á 60 milljónir punda en hann mun þó ekki klæðast treyjunni á þessu tímabili heldur koma í sumar. Sagt er að hann skrifi undir samning til 2031 með möguleika á ári til viðbótar.

„Mér finnst það óskiljanlegt að hann komi í sumar. Liverpool þarf miðvörð núna til að komast í topp fjóra eða fimm," segir sparkspekingurinn Paul Merson, sérfræðingur Sky Sports.

„Ég er algjörlega gáttaður. Ég get ekki skilið að hann verði áfram í Frakklandi þar til tímabilið er búið. Þegar þú eyðir svona upphæð viltu fá manninn strax!"

Liverpool skákaði Chelsea í baráttunni um að fá Jacquet.

„Þessi tíðindi koma mér á óvart því fyrir nokkrum dögum sagði þessi ungi maður að hann vildi fara til Chelsea og umboðsmenn hans sögðust vilja ganga frá skiptum þangað í þessum glugga," segir Clinton Morrison, sérfræðingur Sky Sports.

„Chelsea hefur níu miðverði eða þar um bil, ef þeir hefðu algjörlega þurft á Jacquet að halda hefðu þeir gert stærra tilboð."
Athugasemdir
banner
banner
banner