Frá vinstir til hægri: Ólafur Garðarsson, Stefán Ingi Sigurðarson, Marc van Hintum og Kjartan Henry Finnbogason. Kjartan og Ólafur eru umboðsmenn Stefáns og Marc er 'technical director' hjá Go Ahead Eagles. Kjartan Henry spilaði líkt og Stefán með Sandefjord á sínum tíma.
Stefán Ingi Sigurðarson er genginn í raðir hollenska félagsins Go Ahead Eagles sem kaupir hann frá norska félaginu Sandefjord. Hann var kynntur sem nýr leikmaður félagsins rétt í þessu.
Stefán Ingi, sem er 25 ára framherji, skrifar undir samning sem gildir fram á sumarið 2030. Hann kom til Sandefjord frá belgíska félaginu Patro Eisden sumarið 2024.
Fyrr í dag greindi norski fjölmiðillinn TV2 frá því að kaupverðið væri 34 milljónir norskra króna sem samsvarar 430 milljónum íslenskra króna og þremur milljónum evra. Um er að ræða metsölu hjá Sandefjord en fyrra met átti Christopher Cheng sem fór til pólska félagsins Widsew Lodz í byrjun gluggans fyrir 900 þúsund evrur.

Stefán Ingi er kominn til Go Ahead eftir frábært tímabil í Noregi þar sem hann skoraði 15 mörk í úrvalsdeildinni og endaði sem þriðji markahæsti maður deildarinnar.
Hjá Go Ahead, sem situr í 14. sæti hollensku úrvalsdeildinni, hittir hann fyrir hægri bakvörðinn Alfons Sampsted sem gekk nýlega í raðir félagsins frá Birmingham. Báðir eru þeir uppaldir hjá Breiðabliki.
Næsti leikur hollenska liðsins verður gegn Telstar á útivelli í hollenska bikarnum og í kjölfarið mætast liðin í deildinni á heimavelli Go Ahead í borginni Deventer næsta sunnudag.
Athugasemdir