Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 17:46
Elvar Geir Magnússon
Wilson fer til Tottenham en ekki Arsenal - „Klappað og klárt!“
Mynd: Samsett/Hearts
Tottenham er að fá táninginn James Wilson en erkifjendurnir í Arsenal voru í viðræðum við Hearts um leikmanninn.

BBC segir að Arsenal hafi viljað fá þennan 18 ára leikmann til reynslu hjá sér í sex mánuði.

Tottenham hafi boðið lánssamning út tímabilið, með klásúlu um að geta keypt hann næsta sumar. Wilson hafi ákveðið að taka tilboði Spurs.

Wilson er framherji sem hefur þegar leikið inn fyrsta A-landsleik fyrir Skotland og er með átta mörk í 21 byrjunarliðsleik fyrir Edinborgarliðið. Hann hefur hinsvegar ekki fengið mikinn spiltíma að undanförnu.

Fabrizio Romano er búinn að setja 'Here we go!' stimpilinn á skipti hans til Tottenham. Það er allt að verða klappað og klárt.


Athugasemdir
banner
banner