Ian St John, framherji Liverpool, er látinn 82 ára að aldri en félagið greindi frá þessu í dag.
St John skoraði 118 mörk í 425 leikjum með Liverpool á árunum 1961-1971.
Skotinn varð meistari með Liverpool undir stjórn Bill Shankly tímabilin 1963-1964 og 1965-1966.
Þá skoraði hann einnig sigurmarkið gegn Leeds í úrslitum enska bikarsins árið 1965.
Eftir ferilinn starfaði St John sem sérfræðingur í sjónvarpi auk þess sem hann þjálfaði yngri flokka.
Fyrir okkur Liverpool-bullurnar þá er dagurinn í dag sorgardagur. Eftir magnaðan fótboltaferil vann hann fyrir félagið allt að því til dauðadags. Hvíl í friði "The Saint" <3 https://t.co/2aE6gmg1pG
— Magnús Þór Jónsson (@maggimark) March 2, 2021
Athugasemdir