Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   þri 02. mars 2021 18:40
Aksentije Milisic
Salah gæti misst af byrjun næsta tímabils
Mynd: Getty Images
Mohamed Salah, leikmaður Liverpool, gæti misst af byrjun ensku úrvalsdeildarinnar á næsta tímabili en hann var valinn í leikmannahóp Egyptalands sem tekur þátt á Ólympíuleikunum í Tókýó.

Shawky Gharib, þjálfari undir 23 ára liðs Egyptalands, segir að Salah sé einn af þremur leikmönnum liðsins sem hefur verið valinn, sem er eldri en 23 ára.

„Hópur Egyptalands verður leiddur áfram af Mohamed Salah, Mohamed El-Shennawi og einum öðrum markverði. Salah er einn mikilvægasti leikmaður heims og því er eðlilegt að við fáum hann í hópinn," sagði Gharib.

„Við munum hefjar viðræður við Liverpool eftir landsleikjahléið í mars mánuði."

Mótið fer fram þann 23. júlí og til 8. ágúst, sem myndi þýða það að Salah myndi missa af byrjun tímabils 2021/2022.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner