Topplið Arsenal jafnaði eigið met í 2-1 sigri liðsins á Chelsea á Emirates-leikvanginum í gær.
Bæði mörk Arsenal komu eftir hornspyrnur sem hefur verið þeirra sterkasta vopn síðustu ár.
Seinna markið sem Jurrien Timber skoraði var sextánda hornspyrnumark liðsins í deildinni á þessu tímabili og hefur það nú jafnað eigið met.
Þetta er í annað sinn sem Arsenal skorar sextán hornspyrnumörk, en síðast gerði liðið það tímabilið 2023-2024. WBA gerði það tímabilið 2016-2017 og Oldham sömuleiðis árið 1992-1993.
Það er því nokkuð öruggt að Arsenal muni setja nýtt met á næstu vikum.
16 - Arsenal's 16 goals from corners in the Premier League this season is the joint-most by any side in a single campaign, alongside Oldham in 1992-93, West Brom in 2016-17, and the Gunners themselves in 2023-24. Angles. pic.twitter.com/SkOXJssz2h
— OptaJoe (@OptaJoe) March 1, 2026
Athugasemdir



