Birta Georgsdóttir ætti að vera öllum kunnug en hún var valinn besti leikmaður Bestu deildarinnar á síðasta tímabili. Það ætti því ekki að koma neinum á óvart að Birta hafi verið valin í þetta risa verkefni sem íslenska landsliðið á í vændum. Fyrst er leikur gegn ríkjandi heimsmeisturum Spánar og svo gegn Evrópumeisturum Englands.
Þetta er þó í fyrsta skiptið sem Birta hefur verið valin hvernig skyldu tilfinningarnar vera?
„Bara mjög spennt en eins og þú segir ótrúlega góðir andstæðingar, Heimsmeistarar og Evrópumeistarar, þannig þetta gerist ekki mikið stærra en ég er ótrúlega spennt. Þetta verður bara þvílík reynsla og skemmtilegt.“
Hvernig heyrði hún að því að hún hafi verið valin í fyrsta skiptið?
„Steini hafði bara samband og sagði mér það að hann ætlaði að velja mig og þetta símtal var mjög mjög mjög gaman að fá það.“
„Mömma og pabba. Það var alveg þau strax sko. Þannig að það var mjög gaman að segja þeim að hann hafi haft samband. Þau voru mjög stolt.“ Sagði Birta þegar hún var spurð í hvern hún hringdi fyrst til að segja góðu fréttirnar.
Birta er nú að spila með Genoa á Ítalíu, hvernig var aðdragandinn að því?
„Mjög óvæntur, ef ég má segja. Ég var náttúrlega með samning við Blikana út næsta tímabil en svo kom þetta tækifæri upp mjög óvænt og mér fannst ég ekki geta hafnað því á þeim tíma. Þannig að já bara mjög ánægjulegt.“
„Þetta gæti ekki verið mikið betra. Þótt að gengi liðsins hafi ekkert verið frábært eftir að ég kom að þá er bara ótrúlega næs að búa þarna. Ég er að þróast sem leikmaður, er í svona þessu atvinnumannaumhverfi í fyrsta skiptið og er svona að kynnast bara því lífi. Gott veður, góður matur og þetta eiginlega gæti ekki verið betra.“
Kærasti Birtu, Mikael Egill Ellertsson, spilar einnig með Genoa, það skemmdi væntanlega ekki fyrir að hann hafi verið þarna fyrir?
„Það skemmir náttúrlega ekki fyrir að geta bara flutt til hans og þurfa ekki að pæla í neinu, þannig að það er mjög mjög gaman fyrir okkur að geta verið loksins saman.
Tengdist það eitthvað aðdragandanum?
„Nei ekki neitt. Genoa hafði áður sýnt mér áhuga þegar hann var ekki einu sinni leikmaður félagsins og svo aftur núna. Á þeim tímapunkti fannst mér bara flott skref á mínum ferli einhvern veginn að fara þá. Ég var aðeins yngri þegar þeir höfðu samband síðast en núna fannst mér það bara vera rétt skref fyrir mig.
Viðtalið í heild má finna í spilaranum hér að ofan























