Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
Haraldur Freyr um völlinn: Hefur bara hellings áhrif
Stefan Ljubicic: Bara teipað og tvær til þrjár verkjatöflur
Óli ekki með miklar áhyggjur af bitleysi Blika - „Eigum eftir að laga þetta“
Stubbur: Jú jú, það var eitthvað að gera
Haddi: Fer ánægður með stigið norður
Lárus Orri: Hann hlýtur að vera í liði umferðarinnar
Davíð Smári: Gaman að byrja þetta með alvöru hvelli
Venni: Honum líður vel og er ekki að fara neitt
Mæta pressulausar inn í tímabilið - „Höfum trú á verkefninu“
„Vorum ekkert sérlega ánægðar með það“
„Vissi að pressan kæmi þegar ég tók við sem þjálfari Breiðabliks“
Myndir: Grétar heppinn að fá ekki rautt?
„Okkur var líka spáð falli í fyrra og við afsönnuðum það“
Efstur á óskalista leikmanna - „Þakklátur og smá meyr“
Linda Líf: Það trylltist allt
Glódís: Ótrúlega stolt að spila fyrir Ísland
Emilía Kiær: Kannski hefði hann farið inn á öðrum degi
Ída Marín: Þessi í markinu var ótrúlega pirrandi
Sveindís: Þetta er ekki bölvun - stundum vantar bara heppnina
„Drullusvekkjandi - áttum skilið meira en núll stig“
   mán 02. mars 2026 14:05
Snæbjört Pálsdóttir
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Eimskip
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: EPA

Íslenska kvennalandsliðið mætir ríkjandi heimsmeisturum Spánar í undankeppni HM 2027. Leikurinn hefst klukkan 18:00 á morgun á Estadio Municipal Castalia vellinum í Castellon. Næstkomandi laugardag verður svo leikið gegn Evrópumeisturum Englands. 

Fotbolti.net ræddi að því tilefni við landsliðskonuna Hlín Eiríksdóttur í gær. Hvernig leggst verkefnið í hana?

„Mjög vel, mjög spennt að spila þessa leiki og líka bara gaman að vera komin hingað í landsliðið aftur. Það er hálft ár nánast sem við spiluðum með landsliðinu síðast þannig það er mjög gaman. Krefjandi og skemmtilegt verkefni í stórri keppni sem við ætlum að gera mikið í. Þannig að já mjög gaman.“ Svaraði Hlín 


„Þetta verða erfiðir leikir og það vita allir að þessi lið eru hærra skrifuð en við erum. Þannig við komum að því leytinu til pressulausar inn í leikinn. Sem getur örugglega verið gott en við erum búin að fara vel yfir Spán núna. Sjáum alveg möguleika á móti þeim. Hvar við getum refsað þeim þegar við höfum boltann og svo þurfum við auðvitað að spila varnarleikinn vel.“

Mikið hefur verið í umræðunni sú ákvörðun KSÍ að síðasti landsliðsgluggi hafi ekki verið nýttur í undirbúning og minni tími til undirbúnings í þessu verkefni er þetta eitthvað sem leikmenn ræða saman um innan hópsins?

„Ekkert eitthvað, það eru engar skipulagðar umræður um þetta sko en þú veist, þetta berst kannski alveg til tals og þetta var ekki gott. Ég held að við leikmenn hefðum allar viljað hafa glugga.“

Hvernig var ferðalagið og annar undirbúningur?

„Fyrir mig persónulega var það bara einfalt, ekki langt að fara frá Ítalíu og við erum bara hér á Spáni í einhverja 6-7 daga, mjög næs. Góðar aðstæður hér, mjög góður völlur og getum labbað á æfingu bara. Svo erum við reyndar að fara erum að ferðast á morgun (í dag) á leikstað. Það er nýtt, eitthvað sem við höfum ekkert verið mikið að gera í verkefnum en það er allt bara í mjög góðu standi hérna.“

Viðtalið í heild má finna í spilaranum hér að ofan


Slapp
banner
banner
banner