Heimild: Bold
Jóhannes Kristinn Bjarnason er að ganga í raðir Víkings frá danska félaginu Kolding. Niklas Nurnberg, yfirmaður fótboltamála hjá Kolding, staðfestir heimför Jóhannesar í samtali við Bold.
Jóhannes Kristinn er uppalinn hjá KR og fór ungur út til Norrköping í Svíþjóð en sneri svo aftur í Vesturbæinn. Hann lék vel með KR fyrri hluta síðasta tímabils og var seldur til Kolding í Danmörku. Þar var hann ekki í stóru hlutverki og er nú aftur á heimleið.

„Jóhannes vildi snúa aftur til Íslands, hugurinn leitaði heim. Þegar við náðum samkomulagi sem var ásættanlegt fyrir félagið ákváðum við að verða við þeirri ósk.
Við hefðum sannarlega viljað sjá hæfileika hans blómstra hér en tekið var tillit til hans og þeirrar óskar að snúa aftur í kunnuglegra umhverfi. Við erum ánægð með að hafa náð samkomulagi sem hentar öllum aðilum og óskum honum alls hins besta í framtíðinni,“ segir Nurnberg.
Athugasemdir